Drög til yfirlestrar. Þessi texti hefur ekki verið samþykktur og atriði í [hornklofum] á eftir að ákveða.
Persónuvernd
Hér kemur fram hvaða upplýsingar TÆM geymir um þig, hvers vegna, hverjir sjá þær og hvaða rétt þú hefur. Þetta á við þegar þú bókar tíma hjá listamanni í gegnum TÆM.
Hver ber ábyrgð
Ábyrgðaraðili er [Nafn rekstraraðila ehf.], kt. [kennitala], [heimilisfang], [póstnúmer] Reykjavík. Netfang vegna persónuverndar: [personuvernd@taem.is].
Listamaðurinn eða stofan sem þú bókar hjá fær upplýsingar um bókunina þína til að veita þjónustuna og ber sjálf ábyrgð á því sem hún gerir við þær utan TÆM.
Hvað við geymum
Nafn, netfang og símanúmer ef þú gefur það upp, og tungumálið sem þú velur.
Bókanirnar þínar: listamann, þjónustu, tíma, staðsetningu á líkama, stærð, lit, lýsingu og stöðu bókunar (beiðni, staðfest, afbókuð o.s.frv.), ásamt ástæðu ef bókun er hafnað eða afbókuð.
Viðmiðunarmyndir sem þú hleður upp með beiðni. Þær geta sýnt húð eða eldra flúr.
Staðfestingargjald: upphæð og hvort það var greitt, endurgreitt eða haldið. Kortanúmer fara aldrei um TÆM.
Tölvupósta sem við sendum þér vegna bókana, og hvort þeir komust til skila.
Tæknilegar upplýsingar sem innskráning skráir, svo sem IP-tölu og tíma innskráningar, til að verja aðganginn þinn.
Til hvers og á hvaða grundvelli
Til að taka við bókunarbeiðni, koma henni til listamannsins, staðfesta tímann og senda þér áminningar og breytingar. Grundvöllurinn er samningur við þig um bókunina.
Viðmiðunarmyndir eru eingöngu sýndar listamanninum sem þú sendir beiðnina til, svo hann geti metið verkið. Þú samþykkir það þegar þú sendir beiðnina og getur dregið samþykkið til baka með því að hætta við beiðnina.
Upplýsingar um greiðslur eru geymdar eins lengi og lög um bókhald krefjast.
Hverjir sjá upplýsingarnar
Listamaðurinn sem þú bókar hjá sér nafn, netfang, símanúmer, bókunina og myndirnar. Aðrir listamenn og aðrir viðskiptavinir sjá ekkert af þessu.
Vinnsluaðilar sem hýsa TÆM fyrir okkur: Supabase (gagnagrunnur, innskráning og myndir, hýst í [ESB-landi]), Vercel (vefþjónar) og [póstþjónusta] (tölvupóstur). Þeir mega aðeins nota gögnin til að veita okkur þjónustuna.
Þegar greiðslur á netinu verða teknar í notkun fer greiðslan beint til Teya, sem sér um kortaupplýsingarnar.
Hve lengi
[Ákvörðun: hve lengi bókanir og myndir eru geymdar eftir tímann, t.d. myndum eytt 90 dögum eftir tímann eða eftir að beiðni er hafnað eða rennur út.]
Myndum sem voru hlaðnar upp en aldrei tengdar bókun er eytt sjálfkrafa eftir sólarhring.
Upplýsingar um greiðslur eru geymdar í 7 ár, eins og lög um bókhald gera ráð fyrir.
Rétturinn þinn
Þú getur beðið um afrit af upplýsingunum þínum, leiðréttingu eða að þeim verði eytt, með því að skrifa á [personuvernd@taem.is]. Við svörum innan mánaðar.
Þú getur alltaf hætt við beiðni eða afbókað tíma á síðunni „Bókanirnar mínar“.
Ef þú telur að við förum ekki rétt með upplýsingarnar þínar getur þú kvartað til Persónuverndar (personuvernd.is).
Vafrakökur
TÆM notar aðeins vafrakökur sem þarf til að halda þér innskráðri/innskráðum og muna tungumálið. Engar auglýsinga- eða rakningarkökur.
Síðast uppfært 2026-10-09 · Persónuvernd · Skilmálar